Áróðurspési á fullri ferð

Áróðurspésinn Hjörtur J. Guðmundsson er á fullri ferð á Vísir.is þessa dagana. Skrifar hverja þvæluna eftir aðra í skoðunardálkinn á Vísir.is, eitthvað sem hann virðist hafa auðveldan aðgang að með að skila inn sinni þvælu.

Nýjasta þvælan er að Evrópusambandsaðild sem málstaður skili ekki inn auknu fylgi. Þetta er auðvitað rangt og það er farið að sjást. Þó svo að ný stjórn Samfylkingar hafi ákveðið að aðild Íslands að Evrópusambandinu sé ekki í forgangi eins og er. Þá er aðild Íslands að Evrópusambandinu ennþá mál sem Samfylkingin stendur að, ásamt Viðreisn í íslenskum stjórnmálum. Hjörtur J. hefur aðeins eitt hlutverk og það er að dreifa áróðri og þvælu gegn Evrópusambandinu á Íslandi.

Menn eins og Hjörtur J. Guðmundsson eru ekki marktækir og hafa aldrei verið það. Enda starfa þeir í óheillindum, lygum og blekkingum. Sannleikurinn og staðreyndir eiga ekki heima hjá Hjört J.

Útlendingahaturs frumvarp Dómsmálaráðherra (Jóns Gunnarssonar)

Á Alþingi á að troða núna í gegn frumvarpi Jóns Gunnarssonar um ný lög um útlendinga. Þetta frumvarp sem á að koma í gegn fjarlægir þau litlu réttindi sem flóttamenn og umsækjendur um stöðu flóttamanna á Íslandi hafa í dag. Það er stór hneyksli að svo skuli vera að gera núna, enda er Ísland með eina af sterkustu útlendingalöggjöf í Evrópu vegna þess að fasistanir í sjálfstæðisflokknum eru að smala atkvæðum nasista og annara hópa af fasistum sem er að finna á Íslandi.

Þetta frumvarp og löggjöf um útlendinga á Íslandi eru til skammar og alltof ströng og byggja ekki á neinum rökum. Hérna er eingöngu um hræðslu að ræða, hræðslu sem er fundinn upp í ímyndunarveiki öfgafólks sem er gjörsamlega úr sambandi við allan raunveruleika. Þessu frumvarpi Jóns Gunnarssonar á hafna án tafar og það á að leysa Jón Gunnarsson af hans embætti sem dómsmálaráðherra.

Seðlabankastjóri á villigötum

Það er ljóst að ákvarðanataka Seðlabanka Íslands þegar það kemur að efnahagsmálum á Íslandi er í tómu rugli. Ástæðan er sú að Seðlabanki Íslands er að reyna að spá fyrir um framtíðina og það er ekki hægt að spá fyrir um framtíðina. Þetta er dæmigerð hegðun fólks sem hefur farið í gegnum nám í hagfræði. Þar sem þeim er kennt að það sé hægt að spá fyrir um framtíðina út frá því sem gerist í dag. Þetta er bæði rétt og rangt á sama tíma. Þar sem það er hægt að segja til um þróun mála að einhverju leiti en á sama tíma er hvaða ágiskun sem er mjög líklega röng.

Síðan er verið að hvetja fólk til þess að eyðileggja sinn persónulega efnahag með því að taka verðtryggð lán og íslensku bankanir hafa vextina á óverðtryggðum lánum svo háa að venjulegt fólk getur ekki tekið þau lán með góðu móti. Þetta mun koma í hausinn á íslendingum fljótlega, þar sem verðtryggð lán framleiða peninga sem peningakerfið á Íslandi þarf ekki og það er slæmt.

Bjarni Ben, fjármálaráðherra úr tengslum við raunveruleikann. Samtök Atvinnulífsins hata vinnandi fólk, vilja svelta fólk til hlýðni

Það er að sjá að í fréttum að Bjarni Ben, núverandi fjármálaráðherra þegar þetta er skrifað árið 2020 sé gjörsamlega úr tenglsum við raunveruleikann eins og annað ríkt fólk sem hefur aldrei þurft að hafa fyrir því að hafa fyrir hlutunum. Honum hefur verið úthlutað allt saman, vinna, peningar, starf á Alþingi og síðan ráðherraembætti sem hann kann ekki einu sinni að fara með eða hefur áhuga á að vera í. Síðan þegar efnahagskreppan kom vegna covid-19 þá var hann ráðalaus alveg eins og hann var ráðalaus árið 2008 þegar sú efnahagskreppa gekk yfir Ísland og var honum að kenna. Núna kennir hann fátæku fólki á Íslandi um að það sé fátækt og finnst það alveg vonlaust og hneykslanlegt að fólk skuli biðja um atvinnuleysisbætur sem hægt er að lifa af á meðan þessi efnahagskreppa gengur yfir. Síðan ætlar þessi siðleysingi að auka tekjutengingar á atvinnuleysisbótum til að gera stöðu fólks á atvinnuleysisbótum ennþá verri en hún er í dag.

Ég legg til að Bjarni Ben segi af sér og hætti í stjórnmálum. Hann hefur ekki vit á þessu og hefur ekki heldur áhuga á stjórnmálum og er best geymdur einhverstaðar þar sem hvorugt angrar hann framar.

Samtök Atvinnulífsins

Samtök Atvinnulífsins þykjast vera samtök á meðan raunveruleikinn er að þetta er ekkert annað en hópur gráðugra fyrirtækjaeiganda sem hata að borga fyrir það sem þeir fá í samfélaginu og hafa undanfarna áratugi krafist lægri skatta á þeirra tekjur, þær sem þeir færa ekki fyrir í skattaskjól til þess að komast hjá skattgreiðslum á Íslandi. Þar að auki eru þessi samtök vafasöm og ætti að rannsaka mörg ár aftur í tímann með hugsanleg efnahagsbrot á listanum yfir það sem þarf að athuga.

Síðan í dag þá eru Samtök Atvinnulífsins komin í herferð gegn hærri launum fólks og vilja að fólk lifi á launum sem eru undir framfærslu í dag og hafa einnig barist gegn hærri atvinnuleysisbótum undanfarnar vikur með því að nota sömu lygi og Bjarni Ben, fjármálarðaherra hefur verið að nota. Það er að atvinnuleysisbætur séu nógu háar og ef þær eru hækkaðar þá muni fólk ekki nenna að vinna. Þetta er auðvitað þvæla sem er komin frá ríku fólki sem er gjörsamlega dottið úr sambandi við raunveruleikann og ætti að leggja inn á geðdeild hið snarasta vegna þess að þetta fólk er alvarlega veikt og úr tengslum við allan raunveruleika almennings á Íslandi. Staðreyndin er að almenningur á Íslandi sem vinnur á lágmarkslaunum hefur varla efni á því að vera til Íslandi og þetta fólk á yfirleitt ekki nokkurn skapaðan hlut og bankabækur þess eru almennt tómar meirihlutann af mánuðinum.

Það á að leggja þessi glæpasamtök niður í hvelli enda ljóst að þessi samtök eru orðin gjörspillt og hafa löngu síðan glatað upprunalegu hlutverki sínu.

Frétt Rúv

Vonbrigði að bætur verði ekki hækkaðar (Rúv.is)

Miðflokkurinn er stjórnmálaflokkur fábjána

Það er alveg ljóst að fasista flokkurinn miðflokkurinn er ekkert annað en hópur fábjána þar sem þeirra helsta áhugamál er að koma í veg fyrir framfarir á Íslandi. Slík hegðun er í samræmi við hegðun annara fasista og fólks sem er fast í fortíðinni eða á móti lýðræðinu (eins veikt það er á Íslandi) á Íslandi.

Málþjóf miðflokksins er gegn almenningssagögnum og fyrir það er eitthvað sem þessir menn ættu að skammast sín fyrir. Hinsvegar miðað við klausturmálið þá er ljóst að þessir menn kunna ekki skammast sín og þessi tilraun þeirra til þess að skaða hagsmuni almennings á Íslandi er til skammar.

Fréttir af heimskugangi þingmanna miðflokksins

Umræður um samgönguáætlun og Borgarlínu – Þriðja málþóf Miðflokksins á kjörtímabilinu (dv.is)
Þingmenn Miðflokksins andmæla borgarlínu (ruv.is)

Lyginn er Sigmundur Davíð

Það er alveg ljóst að Sigmundur Davíð getur ekki sagt eitt satt orð um orkupakka þrjú. Nýjasta lygin frá honum er að finna í frétt Rúv frá því fyrr í kvöld (26-Ágúst-2019).

„Ég skil ekki hvernig menn geta leyft sér að halda þessu fram. Það er búið að vera svo mikil umræða í sumar og margt komið í ljós. Ég las til dæmis upp í ræðu minni nýlega fréttatilkynningu Evrópusambandsins um fjórða orkupakkann og málaferli Evrópusambandsins gegn Belgíu vegna þess að Belgía væri ekki að innleiða þriðja orkupakkann rétt,“ sagði Sigmundur í beinni útsendingu í tíufréttum sjónvarps. „Þeir vildu áfram hafa eitthvað að segja um hvaða ákvarðanir væru teknar í orkumálum og hvaða tengingar væru milli annarra landa með raforku.“

Frétt Rúv: Vonar að stjórnarliðar hlusti á baklandið

Þetta er rangt hjá Sigmundi Davíð og fullyrðingin sem hann setur fram er lygi. Belgía hefur ekki gefið orkustofnun Belgíu (sem er samsvarandi stofnun og Orkustofnun á Íslandi) það sjálfstæði sem krafist er í lögum ESB og þar að leiðandi samkvæmt lögum Belgíu. Evrópusambandið tekur engar ákvarðanir varðandi tengingar milli landa. Belgía í dag er mjög vel tengd öllum nágrannaríkjum sínum og hefur verið það í lengri tíma. Ef belgar frétta einhverntímann af þessari þvælu í Sigmundi Davíð þá mundu þeir skamma hann fyrir að vera svona vitlaus og mikill lygari.

Lygar og annað kjaftæði frá andstæðingum Orkupakka 3 (og ESB)

Upphaflega skrifað þann 11.5.2019 á blog.is.

Það verður langvarandi verkefni hjá sagnfræðingum framtíðarinnar að komast að því afhverju íslendingar trúðu á þær lygar sem andstæðingar Evrópusambandsins settu fram í Orkupakki 3 málinu og öðrum um Evrópusambandsins. Þetta verður auðvitað löngu eftir að andstæðingar þessa máls verða fallnir frá og öllum gleymdir.

Það er staðreynd að Ísland framleiðir afskaplega lítið af raforku miðað við það sem er framleitt innan Evrópusambandsins. Mér reiknast til að munurinn sé ekki nema milljónfalldur í minnsta lagi (Ísland framleiðir 10*9 [18,17 milljarðar kWh] en innan Evrópusambandsins er framleiðslan 10*12 [3.043 billjón kWh]. Tölur frá 2016/2015). Það gerir að Ísland framleiðir ekki nema 0,60% af orkuþörf innan Evrópusambandsins. Tækniþróun er einnig að gera sæstreng frá Íslandi að dýrasta og óhagstæðasta möguleika sem verður í boði þegar það kemur að raforkuflutningum.

Það verður ódýrara að byggja vindorkuver og sólarorkuverk innan landamæra Evrópusambandsins heldur en að leggja dýran og viðhaldsfrekan rafstreng frá Íslandi.

Helstu lygar andstæðinga orkupakka 3 er að þar sé krafa um að leggja rafstreng frá Íslandi til Evrópusambandsins. Þetta er auðvitað haugalygi sett fram af vafasömum einstaklingum með ennþá vafsamari pólitíska fortið (sumir af þessum einstaklingum voru bara vanhæfir upp í topp sem stjórnmálamenn og hafa ekkert bætt sig síðan þeir duttu útaf Alþingi í síðustu kosningum).

Það sem er hættulegt við þessa umræðu gegn orkupakka 3 eru þeir einstaklingar sem standa að henni, enda er ljóst að hérna eru vond öfl á ferðinni sem standa að þessari umræðu og eru að hræða marga íslendinga með hreinum lygum um orkupakka 3.

Bláskógarbyggð kaupir ódýran áróður og kjaftæði um orkupakka 3

Upphaflega skrifað þann 28.4.2019 á blog.is.

Sveitarstjórnarfólk Bláskógarbyggðar sem er augljóslega mjög illa að sér í Evrópumálum fer fram í skammarlegri umsögn um Orkupakka 3. Ég mæli með því að það fari æa námskeið um Evrópusambandið hjá Háskóla Íslands eða athugi hvort að sendiráð Evrópusambandsins á Íslandi hafi lesefni um Evrópusambandið sem hægt væri að fá og nota á sveitarstjórnarstiginu.

Raforka á Íslandi er nú þegar seld til álvera á mjög lágu verði og ljóst er sú orkusala er mun óhagstæðari heldur en raforkusala yfir sæstreng myndi nokkurntímann verða. Hinsvegar er lagning sæstrengs frá Íslandi til annara ríkja eitthvað sem Alþingi tekur ákvörðun um og það er ennfremur ljóst að á Íslandi er ekki nein orka til sölu á Íslandi enda fer öll framleiðslan til álvera sem er mjög mengandi iðnaður.

Það er ekkert valdaframsal í orkupakka 3 frekar en í orkupakka 1 og orkuappa 2 sem hafa verið í gildi á Íslandi í mörg ár. Allt tal um valdaframsal er hræðsluáróður saminn af óheiðarlegum andstæðum ESB og EES á Íslandi. Enda er það staðreynd að andstæðingar ESB/EES hafa ekki hikað við að ljúga um Evrópusambandið í umræðunni á Íslandi.

Andstæðingar ESB og EES á Íslandi eru að reyna koma Íslandi úr EES og valda þjóðinni þannig gífurlegum efnahagslegum skaða. Efnahagslegur skaði yrði svo mikill að efnahagskreppan árið 2008 yrði leikur einn í samanburðinum.

Yfirgangur og frekja einangrunarsinna

Upphaflega skrifað þann 9.4.2019 á blog.is.

Eingangrunarsinnar og spillinarmenn eru núna að reyna að koma Íslandi úr EES samningum svo að hægt sé að svipta íslendinga frelsinu sem fylgir aðgangi að hinum innri markaði Evrópusambandsins.

Lygar og blekkingar eru merkimiði þessa fólks og hægt að sjá hann langa leið. Anstæðingar Evrópusambandsins á Íslandi er öfgafólk sem er hættulegt efnahag Íslands og almenningi.

Það á að hunsa og jafnvel banna þetta fólk frá umræðunni á Íslandi vegna þess að það veldur gífurlegu tjóni og öfgafull umræða þess elur á stórhættulegum hópum á Íslandi sem eru jafnvel farnir að hóta því að beita ofbeldi gegn útlendingum.

Burtu með þetta fólk.

Andstæðingar Evrópusambandsins eru ennþá í ruglinu

Upphaflega skrifað þann 16.3.2018 á blog.is.

Á síðustu árum er það ljóst að andstæðingar Evrópusambandsins eru ekki eingöngu í ruglinu. Heldur eru þeir einnig í miklu rugli og vitleysu. Vanþekking þessa fólks á Evrópusambandinu, stafsemi þess og sögu er gífurleg og þetta fólk hefur engan áhuga á því að taka á þessari vanþekkingu sinni og kynna sér málið.

Það er einnig ljóst að ekki er hægt að ræða við andstæðinga Evrópusambandsins á Íslandi. Þetta fólk hefur engan áhuga á því að hlusta á staðreyndinar og vill frekar lifa í gömlum tíma sem kemur aldrei aftur.

Einangrað Ísland er fátækt Ísland. Það er óumflýjanleg staðreynd málsins. Það er eingöngu með inngöngu í Evrópusambandið og með upptöku evrunar sem hægt er að breyta þeirri stöðu til frambúðar.

Það verður ekki alltaf nægur fiskur í sjónum til að veiða í kringum Ísland og einn daginn munu ferðamenninir hætta að koma til Íslands.