Tilgangslaust að ræða við öfgafólk (öfga-feminista)

Ég sé að stjórnendur einkamál.is telja það vera vænlegt að ræða við öfgafólkið sem kallar sig „Stóru Systur“. Þetta er hópur kvenna og karla sem hefur engan áhuga á því að hlusta á rök eða staðreyndir. Það er nefnilega staðreynd að enginn neitar því að það er vandamál með glæpastarfsemi í kringum kynlífsþjónustu. Alveg eins og það eru vandamál með glæpastarfsemi með aðra þjónustu og starfsemi sem er veitt í samfélaginu. Það er þó ekki hlaupið til og krafist þess að umrædd þjónusta sé bönnuð vegna þess að það er glæpastarfsemi í umræddri grein. Glæpamennirnir eru einfaldlega handteknir og dæmdir samkvæmt lögum. Það sama á að gera varðandi sölu á kynlífsþjónustu. Bann á einni af frumþörf mannsins mun ekki skila neinu. Það eina sem mun gerast er að glæpamenn munu taka yfir sölu á kynlífsþjónustu. Þá með öllu því sem fylgir því.

Þetta eru þau vandamál sem „Stóra Systir“ kýs og vill að verði ráðandi í íslensku þjóðfélagi með þeirri stefnu sem þau boða og vilja að sé framfylgt. Þessi hópur fólks hefur núna fengið fram bann á nekt, það er stripp, bann á vændi. Bæði þessi bönn voru sett í lög. Niðurstaðan þessum tvennum lögum er farin að verða frekar augljós. Þetta virkar ekki og er eingöngu sett til þess að framfylgja fáránlegum siðferðiskröfum sem þetta fólk hefur og er núna að neyða yfir alla aðra í þjóðfélaginu. Næst er komið að kláminu hjá þessu fólki. Tilraunir hafa verið gerðar til þess að auka bann á því nú þegar af þessu sama fólki. Ég er alveg viss um að innan nokkura ára verða sett lög sem skipta út núverandi lögum gegn klámi og erótísku efni og verða mun strangari og með hærri sekt og fangelsisdómum. Niðurstaðan verður sú sama þegar þar að kemur og með stripp bannið og bannið gegn vændi. Reyndar verður internetið stærsti þröskldur þessa öfgafólks, en ég reikna bara með að þessi hópur fari bara fram á ritskoðun eins og í versta einræðisríki þegar þar að kemur.

Hérna er síðan myndbrot (auglýsing) úr þætti sem er byggður á bloggfærslum call girl (sem veitir kynlífsþjónustu) í Bretlandi.

Íslenskir fasistar á ferðinni

Það er ákaflega fasistalegt að lesa þessa hérna kröfu hjá neðanjarðarsamtökunum „Stóra Systir“. Samtök sem eru í raun ekkert nema glæpasamtök miðað við það hvernig þau hafa hagað sér núna síðustu daga. Enda hefur það sannast að bann á vændi hefur ekkert að segja, og mun alltaf þrífast á Íslandi þrátt fyrir yfirlýsta stefnu geðveikra siðapostula um að stoppa það.

Það sem er þó ennþá meira áhyggjuefni er þessi hérna krafa samtakana sem kallar sig „Stóra Systir“.

Konurnar sögðu íslenska löggjöf á sviði vændis- og mansalsmála til fyrirmyndar en hún hefði ekki dugað til að útrýma meinsemdinni. Þær lásu upp lista yfir kröfur sínar, sem voru meðal annarra þær að vefsíðunni Einkamálum yrði lokað, að rannsókn mansals- og vændismála yrði undir sérhæfðu teymi sem fengist ekki við önnur sakamál og að stjórnvöld stæðu fyrir fræðsluherferð sem beindist að kaupendum vændis og kláms.

Frétt Vísir.is/Fréttablaðið/Stöð 2 þann 19 Október, 2011. Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir krefst úrbóta

Það er margt við þessar kröfur að athuga. Þá sérstaklega er þarna farið fram á ritskoðun og skoðanakúgun á vefjum vegna þess að þetta kvenfólk telur sig vera að gera eitthvað rétt. Þó án þess að færa fyrir því nokkur einustu rök eða sannanir. Það er ennfremur staðreynd að mansal þrífst þar sem ekki er hægt að koma upp um það. Þar á meðal á Íslandi, þar sem löggjöfin kemur öllu saman neðanjarðar í hendur glæpamanna og annara óþokka. Lausn íslenskra feminista er því ekki nein lausn. Heldur er hérna á ferðinni um að ræða endagötu á málefni sem á sér mjög langa sögu (6000+ ár). Enda verður kynlífsþörf mannsins (bæði karla og kvenna) ekki stoppuð á neinn hátt. Gildir þá einu hvað og hverju íslenskir öfgafeministar halda fram í fjölmiðlum og í prenti. Það að krefjast lokunar á einkamál er auðvitað ekkert nema fasismi í einni mynd. Enda er slíkt ekkert nema skref til kúgunar á hópi fólks sem stendur að öllu sama um skoðanir öfgafullra feminista á Íslandi sem eru á móti öllu sem er kynferðislegt og tengist kynferði.

Það er alveg ljóst að íslenskir öfga-feministar eru varasamur hópur, og það er margt komið fram sem réttlætir lögreglurannsókn á hegðun og lögbrotum þessa hóps. Enda hafa þau ekki brotið nema 10 til 20 lög eftir því sem ég kemst næst. Allt frá lögum um einkalíf til laga um fjarskipti, og hugsanlega eitthvað fleira að auki.

Frétt Vísir.is

Neðanjarðarhreyfingin Stóra systir krefst úrbóta

Alþingi Íslendinga framleiðir glæpamenn

Ég óska íslendingum til hamingju með það að Alþingi Íslendinga hefur fært glæpamönnum markaðinn fyrir nektardans og vændi á innan við ári. Það eru ekki allir sem geta, og munu getað státað sig af þeirri staðreynd að búa til jafn marga glæpamenn á einu bretti og Alþingi Íslendinga.

Þegar fram líða stundir þá verða þetta metin sem ein mestu mistök Alþingis, og jafnframt sem ein hin grófasta tilraun til þess að stjórna mannlegri hegðun (náttúrulegri þ.e.a.s) með lagasetningu sem um getur. Þeir sem standa af þessu banni teljast til öfgafullra feminista (einnig hérna) hérna á landi, og talsmátinn og bullið er í samræmi við öfgafullar skoðanir þessa fólk sem núna er á Alþingi og styður þetta bann.

Ég óska öllum íslendingum til hamingju með nýjustu glæpamennina á Íslandi, og þá glæpamenn sem fylgja í kjölfarið á þessu banni.

Frétt Morgunblaðsins.

Alþingi bannar nektardans