Lygar, blekkingar og öfgafeminstar

Það vantar ekki vitleysuna í feminsta sem gjörsamlega hafa tekið yfir VG og stjórna þeim flokki eins og gólftusku. Með þessu er einfaldlega verið að búa til jarðveg fyrir glæpamenn að þrífast í, þar sem að þetta leysir ekki nein vandamál, heldur bara býr þau til. Sem dæmi um vandamál sem koma upp í kjölfarið á svona lagasetningu er sú staðreynd að þær konur sem stunda vændi ólöglega geta ekki leitað neitt ef á þær er ráðist, þar sem að þær mundu þá lenda í vondum málum hjá lögreglunni ef þær gerðu það.

Feminstar og aðrir öfgahópar sem hafa tekið uppá því að skipta sér að því hvað fer fram í svefnherbergjum fólks ættu að hafa það í huga að þetta kemur þeim ekki við. Kaup og sala á kynlífi er eitt af minnstu vandamálunum hérna á landi. Fíkniefni og önnur glæpastarfsemi er mun stærra vandamál hérna á landi en „vændi“ sem er í raun ekki til, þar sem að konur ættu að fá að ráða hvernig þær sofa hjá og á hvaða skilmálum þær gera svo.

Það er einnig vert að benda á þá staðreynd að feminstar hafa aldrei tekið rökum, sbr stóra klámráðstefnumálið fyrr á árinu. Sérstaklega þegar það kom í ljós að ekki var um neina ráðstefnu að ræða. Einnig sem að lygar feminsta komu þá berlega í ljós í kringum það mál. En þar héldu feminstar fram lygum um mannsal, þrælkun, baraklám og annað í þeim dúr til þess eins að fá athygli á þeirra sjúka málstað. Þess ber að geta að feministar sönnuðu aldrei þær fullyrðingar sem þær komu með fram og ég á ekki von á því að þær geri það. Sérstaklega í ljósi þess að feminstar vita alveg að þær voru að ljúga á fullu fyrr á árinu. Og alveg eins og núna þá eru feminstar að ljúga þegar það kemur að „vændi“ og meintum vandamálum í kringum það. Það ber þó að taka það fram allstaðar eru glæpamenn, alveg eins og það eru dæmdir glæpamenn á Alþingi í dag.

Ég vona svo sannarlega að feminstar leggi upp laupana og VG taki í lurginn á sjálfum sér, það fer nefnilega VG illa að vera gólftuska öfgafeminsta.

Tengist frétt: Leggja fram frumvarp um „sænsku leiðina“