Það er sumar á Suðurpólnum

Ef mér skjátlast ekki, þá er sumar á suðurpólnum um þessar mundir og er því heitt í veðri miðað við staðsetningu. Samkvæmt frétt BBC News þá er skipið að sökkva mjög nærri meginlandi suðurpólsins, þar er kalt allt árið um kring, þó svo að þar sé hásumar.

Ég vona bara að allir bjargist án vandræða og enginn mannskaði hljótist af.

Tengist frétt: Farþegaskip að sökkva við strönd Argentínu

Jarðskjálftinn varð í gærkvöldi

Samkvæmt jarðskjálftalista EMSC þá varð jarðskjálftinn klukkan 23:02 GMT í gærkvöldi. Það setur jarðskjálftan um morgunin á Súmötru, en að kvöldinu hjá okkur. Stærð þessa jarðskjálfta var Mw6.0 (á ricther) og dýpi hans var 40 km. Hérna er hægt að fá fleiri upplýsingar um jarðskjálftan. Miðað við stærð jarðskjálftans þá kemur ekki á óvart að hann hafi fundist, það er hinsvegar spurning um skemmdir vegna þessa jarðskjálfta.

Tengist frétt: Skelfing greip um sig við jarðskjálfta