Ríkisstjórn hinna valdagráðugu vitleysingja

Ríkisstjórn Íslands er samansafn af valdagráðugum vitleysingjum sem eru komnir langt með að leggja innviði íslenskt samfélags í rúst. Eingöngu í þeim tilgangi svo að þeir geti endurbyggt íslenskt samfélag að bandarískri fyrirmynd. Þar sem hinu ríku verða ríkari og hinu fátæku fátækari. Það er stefna sem á ekki að líðast og hefur aldrei átt að líðast.

Ég mun skrifa um ritskoðunaráráttu ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben fljótlega.

Ein komma þrjár milljónir á mánuði fjármálaráðherra skilur ekki neitt

Það er undarlegt að heyra fjármálaráðherra skammast yfir því að kröfur lækna væru svo miklar að ekki væri hægt að fara eftir þeim. Reyndar voru þær fullyrðingar sem Bjarni Benediktsson setti fram á Alþingi og í fjölmiðlum rangar. Launakröfur lækna eru ekkert annað en leiðrétting á þeirra kjörum miðað við aukningu og rýrnun íslensku krónunnar á undanförnum árum. Það sem gildir um íslenska lækna gildir í raun um margar aðrar aðila á íslenskum vinnumarkaði. Laun Bjarna Benediktsson eru á mánuði 1,399 þúsund á mánuði (1,3 milljónir) og er það talsvert hærra en þau laun sem læknar fá í dag.

Heimild: Katrín með hæstu launin og Sigmundur með lægri laun en Jóhanna (eyjan.is)