Öfgatrúmaður heimtar útbreiðslu mannhatandi trúarbragða í grunnskóla Reykjavíkur

Kristni öfgamaðurinn Jón Valur Jensson og hans fámenni hópur öfgafólks sem hann hefur safnað í kringum sig krefst þess að kristinn heilaþvottur (sjá grein hérna) fái inngöngu í grunnskóla Reykjavíkur með því að gefa grunnskólabörnum biblíu frá öfgasamtökunum Gídeon (Vantrú.is), sem eru samtök fólk sem aðhyllast öfgafullar kristnar skoðanir og boða þær í nafni náungakærleika og manngæsku. Þessi kristnu öfgasamtök eru allt annað en það og málflutningur Jóns Vals og fólks sem er í kringum hann er bæði öfgafullur og fullur af mannhatri og foraldarlegri mannvonsku sem á uppruna sinn í biblíunni, trúarbrögðum frá járnöld sem hafa því miður lifað til dagsins í dag.

Það á skilyrðislaust að neita öllum trúarbrögðum aðgang að grunnskólum á Íslandi og einnig leikskólum sem og öðrum menntastofnunum á Íslandi. Boðsmenn trúarbragða hafa ekkert í þessar stofnanir að gera, enda eru trúarbrögð andstaðan við menntun og framþróun, trúarbrögð tákna afturför, mannhatur og mannvonsku. Það ætti helst að leggja þetta niður nú þegar en því miður tekur slíkt tíma og væntanlega verður mannkynið ekki laust við trúarbrögð fyrr en eftir eina öld eða svo. Þökk sé framþróun og aukinni vísindaþekkingu sem mun aukast á komandi áratugum.

Facebook búið að loka á Pressan.is

Það virðist sem að Facebook sé búið að loka á vefsíðuna Pressan.is. Þegar ég reyndi að setja inn tengil inná gamla frétt frá Pressunni. Þá fékk ég þessi skilaboð upp hjá Facebook.


Lok og læs hjá Facebook gagnvart Pressunni. Skjáskot af Facebook.com þann 17.02.2017.

Ég veit ekki hvað veldur þessu, þar sem að Pressan.is er ekki að hýsa neinn „maleware“, „spyware“ eða neitt slíkt eftir því sem ég kemst næst. Það er alveg ljóst, miðað við það hvernig Facebook starfar að það verður mikill og langur hausverkur fyrir Pressuna að losna af þessum bannlista hjá Facebook.

Útlendingstofnun lýgur um vegabréfaáritanir fjölskyldumeðlima fólks (frá ríkjum Afríku, Asíu og fleiri ríkja)

Ég setti eftirtalda athugasemd við fréttina „Útlendingastofnun hefur engin áhrif á vegabréfsáritanirr“, þar sem þetta er hrikaleg lygi hjá Útlendingastofnun eins og ég nefni í athugasemdinni.

„Þetta er lygi hjá Þorsteini Gunnarssyni, Schengen reglunar taka eingöngu til þeirra ríkja sem þurfa vegabréfsáritanir og síðan áritanir til þess að fara um flugvelli Schengen ríkja til þriðja ríkis (nokkur þannig ríki). Auk þeirra ríkja þar sem vegabréfsáritunar er ekki þörfa og íbúum þessara ríkja er heimilt að vera á Schengen svæðinu í 90 daga á ári á hverjum 180 dögum.

Það eru sjálf ríkin sem ráða sínum vegabréfsáritunarskilyrðum til þeirra sem vilja koma til umræddra ríkja. Sendiráð annars ríkis hefur ekkert um það að segja þó svo að þjónustan sé veitt þar, enda eru það lög þess Schengen ríkis sem ferðast á til sem gilda í öllum tilfellum.

Útlendingastofnun og starfsmenn hennar eru hérna að ljúga sem starfsmenn íslenska ríkisins og það er alvarlegt brot á starfsheiðarleika. Þorsteinn Gunnarsson ætti að segja af sér án tafar, ásamt öllum yfirmönnum Útlendingastofnunar, þetta fólki er ekki hægt til þess að vera í þeim störfum sem það gegnir.

Hérna er verið að mismuna fólki, sem er ennfremur alvarlegt brot á lögum ESB varðandi réttindi ættingja og fjölskyldu meðlima til þess að heimsækja ættingja sína sem búa innan Schengen svæðsins. Evrópusambandið er með góða vefsíðu sem útskýrir þetta allt saman hérna (tengill fyrir neðan). Ég mælist til þess að Þorsteinn Gunnarsson lesi þessa vefsíðu eins og aðrir yfirmenn Útlendingastofnunar.

Heimild: http://europa.eu/youreurope/citizens/travel/entry-exit/non-eu-family/index_en.htm“

Kristnir talibanar á Íslandi

Á Íslandi er fullt af kristnum talibönum. Einn af þessum fávitum og drullusokkum er maður af nafni Jón Valur Jensson, sem gerir útá útlendingahatur, andúð á Evrópusambandinu og einnig á önnur Júdísk trúarbrögð og er vinsælast hjá honum að ráðast á íslam vegna öfgamanna sem þar eru, þó vill Jón Valur Jensson ekkert ræða þær öfgar sem hann á sjálfur sameiginlegt með íslömskum trúarbræðrum sínum. Þar á meðal afnám mannréttinda samkynhneigðra, kvenna (þar vill hann helst afnema réttindi kvenna til fóstureyðinga og réttindi til getnaðarvarna, mér þykir einnig líklegt að hann vilji einnig banna konum að skilja við menn sína eins og aðrir kristnir öfgatrúmenn).

Núna síðast vill Jón Valur Jensson afnema ferðafrelsi múslíma vegna nokkura hryðjuverkarmanna sem starfa þar en hann hefur ekkert nefnt um að afnema ferðafrelsi kristinna öfgamanna og hryðjuverkarmanna. Einn af þessum hryðjuverkarmönnum drap sex manns um daginn í Kanada (frétt um fjöldamorðin) í köldu blóði og Jón Valur Jensson virðist ekkert rosalega pirraður á því. Enda sá hann enga ástæðu til þess að fordæma þessa hryðjuverkaárás og fjöldamorð en er á sama tíma að ráðast á múslíma fyrir sömu glæpi. Tvískinnungirinn er hrikalegur.


Jón Valur Jensson vill skerða ferðafrelsi allra múslíma vegna öfgamanna sem þar eru. Þetta er ógeðfelld skoðun og á ekki neinn rétt á sér.

Tilvitnun í Jón Val, „[…] Evrópa reisti sér hurðarás um öxl með innflytj­enda­stefnu síðustu áratuga. Henni hefnist þar líka að hafa drepið niður eigið kyn með millj­ónum fósturvígs­aðgerða.[…]“.

Þessi tilvitnun byggir á bulli, kjaftæði sem var fundið upp á 18 og 19 öldinni þegar rasismi náði flugi í Evrópu og fór að breiðast út (sjá hérna, hérna og hérna). Það er hægt að vitna í margar fleiri heimildir sem sýna og sanna að þessi réttlæting Jóns Vals á sínum eigin rasisma er ekkert nema tómt kjaftæði sem hefur ekki og mun aldrei standast neina skoðun. Jón Valur notar orðið „fósturvígsaðgerða“ um fóstureyðingar, réttindi sem hann er mjög svo áhugasamur um að taka af konum.

Jón Valur er alvarlega ruglaður einstaklingur, eins og liðið sem heldur til á Útvarpi Sögu og stundar þar níðhátt sinn gagnvart saklausi fólki sem hefur komið til Íslands í leit að betra lífi. Það eru ekki flóttamennirnir sem eru vandamálið hérna, heldur er það ógeðfellt fólk eins og Jón Valur sem stundar stöðugan hatursáróður gegn flóttamönnum og útlendingum sem er vandamálið. Enda er verið með þessum málflutningi verið að hvetja til ofbeldis gegn saklausu fólki, hvort sem er með beinum eða óbeinum hætti og það á ekki að líða slíkt. Enda er fólk allstaðar eins, alveg óháð því hvaða heimskulega trúarbragð það stundar.

Það er nóg til af kristnum hryðjuverkarmönnum en fjölmiðlar fjalla lítið eða ekkert um þá, hvort sem er á Íslandi eða annarstaðar. Hérna er grein frá árinu 2015 um tíu hættulegustu kristnu hryðjuverkahópana sem eru þekktir í dag.

* Þess má einnig geta að Jón Valur Jensson leyfir ekki neinar skoðanir sem eru andstæðar hans eigin á blogginu sem hann er með á blog.is. Enda hefur maðurinn ekkert þol gagnvart andstæðum skoðunum annars fólks og hefur aldrei haft það. Síðan má einnig nefna það að Jón Valur er mikill stuðningsmaður fasisma og hefur á undanförnum áratugum stutt fasista hvar sem þeir hafa komið fram í heiminum. Ég veit ekki til þess að það hafi neitt breyst hjá honum á síðustu áratugum. Enda er maðurinn snar-brenglaður og ætti að öllu jöfnu að vera meðhöndlaður sem jarðar-tilfelli, því miður hefur Jón Valur Jensson fengið mikið vægi í umræðunni á Íslandi og það er ekki í lagi og því er nauðsynlegt að tala gegn þvælunni sem frá honum kemur þegar þvælan verður slík að óþefinn leggur um allt internetið.

Gamla fólkið í Heimssýn skilur ekki ESB eða lög ESB

Í Heimssýn er aðalega gamalt fólk sem þjást af alvarlegri fortíðarþrá og einangrunarhyggju, auk örfárra einstaklinga sem eru aðeins yngri og hafa verið heilaþvegnir af eldra liðinu eða hafa hreinlega bara alltaf verið fasistar í eðli sínu. Í nýjustu grein á vefsíðu Heimssýn (sem blog.is hýsir, þeir kunna ekki annað) þá tala þeir um að Ísland sé aðeins búið að taka upp 17,2% af lögum ESB upp í gegnum EES samninginn. Þetta er nærri því að vera rauntala (lög ESB væru líklega mest upp að 20% af lagasafni Íslands ef allt væri inni, þetta er ágiskun hjá mér), sem þýðir að íslendingar eru búnir að taka upp öll lög ESB upp í gegnum EES samninginn. Það eru auðvitað lögin sem tengjast tollabandalaginu, evrunni, landbúnaði og sjávarútvegi sem eru fyrir utan EES samninginn sem íslendingar hafa ekki tekið upp í dag og munu ekki gera fyrr en Ísland gengur í ESB samstarfið. Það ætti að gerast eftir nokkur ár ef allt gengur eftir, enda er ljóst að verulega hallar á íslenska hagsmuni með því að standa fyrir utan ESB og evruna í dag og sú staða mun ekkert breytast með brjálæðingin sem er núna við völd í Hvíta Húsinu.

Þjóðernissamtök eins og Heimssýn eru skekkja í dag, enda byggja þau á hugmyndafræði heimsveldana, hugmyndafræði sem hrundi um miðja 20 öldina eftir seinna stríð en lokanaglinn í þá hugmyndafræði varð þegar fyrsta heimsstyrjöldin braust út árið 1914. Þessi hugmyndafræði er bæði hættuleg, heimskuleg og skilar ekki neinu fyrir almenning og hefur aldrei gert það.

Sú hugmyndafræði Heimssýnar að íslendingum sé best borgið utan allra bandalaga og eigi bara að stofna til fríverslunarsamninga (stofnandi Heimssýnar var einnig á móti EFTA aðild Íslands á sínum tíma og spáði dómsdegi yfir íslendingum ef íslendingar færu þar inn, sama gerði hann þegar íslendingar gengu í EES samninginn) við önnur ríki. Þetta er heimskuleg hugmyndafræði, sett fram af afskaplega heimsku fólki sem hefur ekki nennt að kynna sér málin. Síðan hefur það notað þjóðerniskennda umræðu til þess að ná fram sínum skoðunum í umræðuna án þess að hafa lagt fram nein rök fyrir sínum skoðunum. Það hefur reynst vonlaust verkefni að fá þetta fólk til þess að sanna þær fullyrðingar sem það setur fram, með rökum eða sönnunargögnum.

Það mun koma vel í ljós þegar Bretland gengur úr Evrópusambandinu árið 2019 hversu langt þetta fólk leggur sig fram í að ljúga að almenningi á Íslandi og hversu rangt það hefur fyrir sér varðandi Evrópusambandið. Skoðanir og fullyrðingar Heimssýnar eiga ekkert skylt við raunveruleikann og hafa aldrei átt neitt skylt við raunveruleikann. Það mun ekkert breytast á næstunni hjá þessu fólki. Það á ekki að trúa því sem Heimssýn setur fram varðandi Evrópusambandið, enda er það annaðhvort lygi eða útúrsnúningur á því sem Evrópusambandið er að gera.