Klukkan 18:34 varð jarðskjálfti uppá ML3,4 samkvæmt sjálfvirkum mælingum Veðurstofu Íslands. Í kjölfarið á þessum jarðskjálfta kom annar jarðskjálfti uppá ML3,0. Ég veit ekki hvort að þessir jarðskjálfti hafi fundist. Líklegt er að þarna verði fleiri jarðskjálftar af sömu stærð á næstu klukkutímum.
Líklegt er að þarna séu á ferðinni hefðbundnir brotaskjálftar sem einkenna Reykjaneshrygginn og Reykjanesið.