Það eru margir sem vilja vita hvað gerist ef Ísland gengur ekki í ESB. Hérna er svarið eins og ég best veit það.
Það mun ekkert sérstakt gerast. Hinsvegar munu þau vandamál sem eru óleyst í dag verða áfram óleyst. Það er gjaldeyrissveiflur, verðbólga, verðtryggingin, verðlag á matvöru og fleira í þeim dúr. Það mun auðvitað segja sig sjálft að verðtryggingin mun verða áfram til staðar ef Ísland gengur ekki í ESB. Vextir munu ennþá verða háir vegna krónunnar, sama mun gilda um verðlag á Íslandi. Það mun halda áfram á svipaðri braut og verður hefur.
Staða EES samningins mun ennfremur verða óljós ef íslendingar hafna ESB aðild. Þar sem að með gjaldeyrishöftunum þá brjóta íslendingar eina af grunnstoðum þess samnings, það er frjáls flæði fjármangs á milli landa.
Síðan munu íslendingar ekki njóta neins aðhalds frá Framkvæmdastjórn ESB, sem sér um að lögum og reglum ESB sé framfylgt með réttum hætti á Íslandi. Það er nefnilega Framkvæmdastjórn ESB sem er eftirlitsaðili innan ESB og sér til þess að allir fari eftir sömu reglunum og sitji við sama borð.
Að öðru leiti, þá mun ekkert breytast á Íslandi ef að andstæðingar ESB á Íslandi hafa sigur. Íslendingar þekkja fullvel til ástandsins á Íslandi í dag, og þurfa því að spurja sig þeirrar spurningar hvort að þeir vilji halda núverandi ástandi áfram með því að hafna væntanlegum aðildarsamningi Íslands og ESB. Núverandi ástand, og afbrigði af því geta varað í marga áratugi ef íslendingar hafna ESB aðild núna, eða þangað til að íslendignar mundu sækja aftur um ESB aðild. Hvenar sem það svo yrði.