Ætla að kæra Vinstri vaktin gegn ESB fyrir meiðyrði og hótanir gegn mér í athugasemdum

Ég hef tekið þá ákvörðun að kæra bloggsíðuna Vinstri Vaktin gegn ESB fyrir óhróður sem er rekin gegn mér í athugasemdum þess blogg af hálfu nafnlausra aðila. Vinstri Vaktin gegn ESB hefur ennfremur ekki svarað í neinu eða gert neitt af sinni hálfu til þess að kom í veg fyrir umræddan óhróður, hótanir og meiðyrði í minn garð. Jafnvel eftir að ég bað stjórendur vefsins að koma í veg fyrir umræddar athugasemdir og jafnvel bannað viðkomandi einstakling. Af þeim sökum þá lít ég réttilega svo á að Vinstri vaktin gegn ESB taki ábyrgð á umræddum athugasemdum og hugsanlega þeim aðila sem setti þær inn. Umræddur aðili hefur meðal annars hótað mér líkamsárásum og hefur kvatt til þess að ég drepi sjálfan mig. Einnig sem að umræddur aðili sem kallar sig „palli“ hefur kvatt annað fólk til þess að drepa sjálft sig. Þetta hefur viðkomandi gert oftar en einu sinni, án þess að stjórnendur vefjaranis hafi nokkuð gert í málinu eða komið í veg fyrir þessa hegðun á þeirra bloggi. Það er þannig að frjáls umræða er ekki það sama og stjórnlaus umræða. Frelsi fylgir alltaf ábyrgð. Það á við í þessu tilfelli eins og annarstaðar.

Af minni hálfu þá hef ég gert allt sem er í mínu valdi stendur til þess að stoppa þetta af. Þá án þess að þurfa leita til lögreglunar á Íslandi. Enda lít ég á það skref sem síðasta skrefið ef allt annað hefur klikkað. Ég reikna fastlega með að senda kæruna til Lögreglunnar í Reykjavík ásamt viðbótargögnum í fyrstu viku Október 2012 (vika 40). Enda tekur úrvinnsla gagna smá tíma hjá mér.

Hérna eru síðustu ummæli einstaklings sem kallar sig „palli“ gegn mér. Þetta er ófögur lesning. Hægt er að sjá þetta í heild sinni hérna (væntanlega í einhvern tíma eftir að þessi bloggfærsa kemur fram á vef Vinstri vaktin gegn ESB á blog.is).


Ég sé enga ástæðu til þess að sitja undir svona hótunum og vera sagt að ég eigi að drepa sjálfan mig. Þetta er einnig rafrænt einelti í sinni verstu mynd. Enda er umræddur maður að reyna þagga niður í mér með hótunum um líkamsárásir og annað slíkt. Ég sé einfaldlega enga ástæðu til þess að lýða slíkt. Ég er tilbúinn til þess að koma þeim sem standa í svona hegðun fyrir dómstóla. Ég er einnig tilbúinn til þess að koma þeim fyrir dómstóla sem heimila svona hegðun. Í þessu tilfelli er það Vinstri vaktin gegn ESB.

Þær athugasemdir sem ég fengið frá þessum manni sem kallar sig „palli“ telja í tugum. Allar eru þær á sama veg. Þetta hérna að ofan er þó það versta sem hefur komð frá umræddum manni hingað til. Hefur slóð athugasemda hans hingað til ekki verið fögur eða verið til eftirbreitni.

Vinstri vaktin gegn ESB getur komið í veg fyrir þessa kæru með því að taka ábyrgð á því sem er skrifað í athugasemdir á þeirra blogg. Þá með því að eyða og útiloka umræddan mann sem kallar sig „palli“. Að öðrum kosti hef ég ekki neinn annan valkost en að kæra Vinstri vaktin gegn ESB til lögreglunar í Reykjavík, ásamt umræddum manni sem kallar sig „palli“.

Uppfært: Ég gef Vinstri vaktinni gegn ESB færi á að taka til hjá sér. Enda er lögsókn mikið mál, tímafrekt og ekkert nema leiðindi fyrir alla aðila. Aftur á móti eru fyrstu viðbrögð eins og hægt er sjá hérna ekkert upplífgandi. Enda er notandinn „Elle“ tengdur Vinstri vaktinni gegn ESB, aftur á móti veit ég ekki hvort að viðkomandi hafi einhver áhrif á ritstjórnarstefnu Vinstri vaktin gegn ESB. Ef þetta er viðhorfið hjá stjórendum umræddar bloggsíðu (þeir eru fleiri en einn). Þá mun ég senda þetta mál sína leið í gengum íslenska dómskerfið. Með öllum þeim kostnaði og leiðindum sem fylgja slíku ferli.

Uppfært klukkan 22:54 UTC þann 22.09.2012.