Facebook búið að loka á Pressan.is

Það virðist sem að Facebook sé búið að loka á vefsíðuna Pressan.is. Þegar ég reyndi að setja inn tengil inná gamla frétt frá Pressunni. Þá fékk ég þessi skilaboð upp hjá Facebook.


Lok og læs hjá Facebook gagnvart Pressunni. Skjáskot af Facebook.com þann 17.02.2017.

Ég veit ekki hvað veldur þessu, þar sem að Pressan.is er ekki að hýsa neinn „maleware“, „spyware“ eða neitt slíkt eftir því sem ég kemst næst. Það er alveg ljóst, miðað við það hvernig Facebook starfar að það verður mikill og langur hausverkur fyrir Pressuna að losna af þessum bannlista hjá Facebook.