Demantar gefa vísbendingar um frumstætt líf

July 3, 2008 on 8:04 am | In Vísindi | No Comments

Nýlega uppgötvaðir demantar virðast geyma vísbendingar um mjög frumstætt líf sem var uppi yfir 4.25 milljörðum árum síðan. Umræddir demantar eru 4.4 milljarða ára gamlir samkvæmt vísindamönnum sem hafa rannsakað þá. Í þeim er að finna kolefni sem er meira skylt því finnst í frumstæðum örverum og plöntum.

BBC News er með nánari fréttir af þessari uppgötvun.

Diamonds hint at ‘earliest life’

Trúarbrögð eru skálkaskjól þjófa

July 2, 2008 on 8:47 pm | In Fréttir, Trúleysi | No Comments

Eins og svo margoft hefur verið haldið fram og hefur reglulega sannast. Þá eru trúarbrögð ekkert nema samansafn þjófa og annars siðblinds liðs sem gerir allt það sem ólöglegt er í nafni trúarinnar.

Núna er Bandaríska þingið farið að rannsaka Evangalíska sjónvarpspresta (þessa sem boða meðal annars sköpunarsöguna) vegna gruns um skattsvik og annað slíkt.

Frétt BBC World News um þessa rannsókn.

Senate examines TV evangelists

Skoðanakúgun fyrirtækja

July 2, 2008 on 7:21 pm | In Skoðun | No Comments

Það er greinilegt að fyrirtæki hérna á landi virða ekki tjáningarfrelsi einstaklinga sem eru í vinnu hjá þeim. Það á að segja lög gegn þannig hegðun fyrirtækja, þar sem að fólk hefur rétt á því að tjá sig þó svo að sé í vinnu hjá viðkomandi fyrirtæki. Jafnvel þó svo að það sé gagnrýnið á viðkomandi fyrirtæki.

Upptökin að þessari færslu liggja í þessari hérna frétt.

Vagnstjóri segist rekin vegna bloggfærslu

Síminn slekkur á NMT sendum

June 27, 2008 on 9:53 am | In Fjarskipti | No Comments

Samkvæmt frétt á Rúv þá er Síminn farinn að slökkva á NMT sendum. Það vill svo til að umræddir NMT sendar eru á sama stað og ný uppsettir GSM sendar (Möðrudalsöræfi).

Póst og Fjarskiptastofnun hefur gert Símanum skylt að vera með NMT kerfið í gangi þangað til að nýtt langdrægt símakerfi er komið í gagnið. Hið nýja langdræga fjarskiptakerfi er kerfi sem kallast CDMA-450 og tilheyrir CDMA2000 staðlingum og það kerfi flokkast sem 3G kerfi.

Tengist frétt: Síminn setur upp GSM senda

Af hverju hlær fólk af sköpunarsinnum ? #5

June 26, 2008 on 1:32 am | In Trúleysi | No Comments

Afhverju hlær fólk af sköpunarsinnum ? Myndband #5.

Af hverju hlær fólk af sköpunarsinnum ? #4

June 26, 2008 on 1:28 am | In Trúleysi | No Comments

Afhverju hlær fólk að sköpunarsinnum ? Myndband #4.

Af hverju hlær fólk af sköpunarsinnum ? #3

June 26, 2008 on 1:22 am | In Trúleysi | No Comments

Af hverju hlær fólk af sköpunarsinnum ? Myndband #3.

Frelsið til þess að vera bundinn

June 25, 2008 on 11:48 pm | In Stjórnmál | No Comments

Ég er alltaf jafn hissa á málflutningi[2] andstæðinga ESB. Sérstaklega í ljósi þess að andstæðingar ESB hafa yfir leitt ekkert til málanna að leggja nema rangfærslur og annan hræðsluáróður sem á uppruna sinn þjóðerniskennd sem hefur alltaf verið skaðleg. Þessa þjóðerniskennd þekkja allir og ég sé ekki neina ástæðu til þess að fara nánar útí hana. Þess í stað ætla ég að skrifa um eitt atriði í málflutningi ESB andstæðinga sem fer afskaplega í taugarnar á mér. Andstæðingar ESB tala nefnilega alltaf um frelsið sem Íslendingar njóta vegna þess eru utan ESB. Því miður er þessi frelsishugsun andstæðinga ESB ekkert nema tal útí loftið til þess að rugla fólk í ríminu og draga athyglina frá góðri umræðu um ESB. Ég ætla að fjalla seinna um efnahag ESB og þær staðreyndir sem þar er að finna, það er bara svo stórt viðfangsefni að ég þarf að gefa mér tíma í að rannsaka það málefni í þaula.

Andstæðingar ESB tala oft og mikið um frelsið, sérstaklega frelsi Íslands vegna þess að við stöndum utan við ESB þessa dagana. Þó erum við í EES sem er ekkert nema framlenging á ESB, við fáum þar aðgang að mörkuðum ESB en ekki nein völd innan ESB og getum ekki lagt neitt til málana eða ákvarðanatöku innan ESB. Í efnahagsmálum eru íslendingar bundnir við bölvun krónunnar, sem hoppar núna upp og niður á gjaldeyrismörkuðum. Krónan er ennfremur eingöngu hægt að nota hérna á landi, erlendis er krónan verðlaus með öllu og það eru bara braskarar, innlendir sem erlendir sem njóta þess að spila með krónuna og græða á því.

Bölvun krónunnar kemur fram einnig á annan hátt. Íslendingar eiga þessa dagana erfitt uppdráttar, efnahagskreppan sem gengur yfir heiminn þessa dagana hefur séð til þess. Ofan á þetta hefur síðan vonlaus gjaldmiðill sem spilar sína rullu í að eyðileggja kaupmátt venjulegs fólks á Íslandi. Þegar við stöndum fyrir utan ESB þá þýðir það einnig að útflytjendur fá ekki sjálfkrafa aðgang að mörkuðum Evrópu, sérstaklega þó landa ESB. Þetta veldur því að útflytjendur lenda í tollahöftum á vörum sínum, sem er mjög slæmt fyrir þá og íslensku þjóðina.

Andstæðingar ESB virðast halda að það sé frelsi að vera bundin í þjóðernishyggju og hugmyndum sem tilheyra fyrri hluta 20 aldarinnar, en ekki þeirri samvinnu sem hefur einkennt Evrópu frá því að ESB varð að raunveruleika. Það er ekkert frelsi fólgið í því vera bundin við ónýta hugmyndafræði eins og þá sem andastæðingar ESB halda á lofti í dag. Mesta frelsið felst í því að taka þátt í samfélagi þjóðanna, sérstaklega þá því samfélagi þjóða sem er að finna í Evrópu og ESB.

1000 ár af “afrekum” sköpunarsinna

June 25, 2008 on 7:48 pm | In Trúleysi | No Comments

Hérna er myndband sem sýnir afrekaleysi sköpunarsinna síðustu 1000 árin.

Next Page »

Powered by WordPress with Pool theme design by Borja Fernandez.
Entries and comments feeds. Valid XHTML and CSS. ^Top^