Spillingarblinda hjá flokksmanni Sjálfstæðisflokksins

Það er innihaldslaus lofgrein í Stundinni frá siðblindum flokksmanni Sjálfstæðisflokksins um landsfund Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi í Reykjavík (Laugardagshöllinni). Þar sem innihaldið er ekkert þá hef ég afskaplega lítið að segja um það. Nema að þessi grein sýnir hvernig fólk verður samdauna spillingu og siðleysi upp að því marki að það sé ekkert að slíkri hegðun. Þessi grein er afskaplega gott dæmi um slíkt.

Sjálfstæðisflokkurinn er siðblindur flokkur, leiðtogar Sjálfstæðisflokksins eru siðblindir einstaklingar og formaður Sjálfstæðisflokksins stundar skattundanskot í stórum stíl ásamt því að eiga sér langa sögu vafasamra viðskipta erlendis og á Íslandi. Ekkert af þessu fólki ætti með réttu að vera á Alþingi íslendinga þar sem þessir einstaklingar hafa ekki siðfræðilegan þröskuld til þess að taka þátt í lagasetningum á Íslandi.

Umrædd grein á Stundin.is

Landsfundur hrútskýrður (stundin.is)

Frétt Morgunblaðsins frá 2013 um Jórunni Pálu og framboð hennar til Heimdalls innan Sjálfstæðisflokksins

Jór­unn Pála í for­manns­fram­boð (mbl.is, 2013)

Páll Magnússon alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á að segja af sér þingmennsku án tafar

Það er ekki í lagi að alþingismaðurinn Páll Magnússon ráðist gegn frjálsum fjölmiðlum á Íslandi eins og hann hefur verið að gera. Slíkt er brottrekstrarsök af Alþingi íslendinga og því á Páll Magnússon að segja af sér þingmennsku án tafar. Krafan um afsökunarbeiðni er hlægilegt bull sem á ekki að taka mark á.

Yfirgangur sjálfstæðismanna gegn frjálsum fjölmiðlum á Íslandi er eitthvað sem á ekki að líðast og íslendingar ættu að sleppa því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn enda eru báðir flokkanir þjakaðir af draumum um einræði og þöggun frjálsrar fjölmiðla á Íslandi. Slíkt á ekki að lýða enda eru frjálsir fjölmiðlar eina leiðin til þess að stoppa þessa þjófa frá því að ræna íslensku þjóðina inn að beini.

Fréttir af þessu máli

„Hættið að verja þennan ósóma“ – Vísir.is

Sigríður Á. Andersen brýtur mannréttindi, alþjóðalög og útlendingalög á flóttamönnum

Dómsmálaráðherra, Sigríður Á. Andersen er núna kerfisbundin farið að brjóta mannréttindi, alþjóðalög og útlendingalög á flóttamönnum sem koma til Íslands. Af þeim sökum á Sigríður Á. Andersen að segja af sér embætti án tafar. Þetta er auðvitað ekkert annað en ný-nasista háttur sem er viðhafður af Sigríði Á. Andersen og þeim reglum sem hún er að smygla í gengum kerfið í formi reglugerða sem eru ekki löglegar og hafa aldrei verið löglegar þar sem þær eru andstæðar íslenskum lögum og þeim alþjóðasáttmálum sem íslendingar hafa skrifað undir.

Þetta er hegðun hjá stjórnmálamanni og ráðherra sem á ekki að líðast og er ekkert nema skilyrðislaus brottrekstrarsök af Alþingi og úr ríkisstjórn. Það er ekkert annað í boði í þessu tilfelli. Það þarf einnig lögreglurannsókn á embættisverkum Sigríðar Á. Andersen þar sem hérna er augljóslega verið að brjóta íslensk lög og alþjóðlega sáttmála sem Ísland hefur samþykkt eins og ég nefni fyrr í þessari grein.

Vinstri Grænir eru einnig samsekir í þessu lögbroti. Það á að vísa þeim öllum eins og þingflokki sjálfstæðisflokksins og framsóknarflokksins af Alþingi vegna þessa máls og fleiri mála sem hafa verið að koma upp undanfarið.

Fréttir af þessu máli

Sigríður þrengdi að réttindum hælisleitenda sama dag og hún fékk stuðning frá þingmönnum Vinstri grænna (Stundin.is)

Grein uppfærð klukkan 13:44. Leiðrétting á nafni dómsmálaráðherra.