Baugsárátta hægri manna

Eftir að Davíð æðsti kongur hægri manna á Íslandi gaf það út hérna um árið að Baugur (nú gjaldþrota og löngu horfinn) væri óvinur hans og Björgólfs númer eitt. Þá hafa hægri menn ekki látið á sér standa og staðið í endalausu stríði við vindmillur, en fyrst og fremst hafa þeir sakað alla þá sem ekki eru þeim sammála um að vera Baugs hitt og þetta, og nota þeir þessa ásökunaraðferð við hvert tækifæri.

Hérna er gott dæmi um þennan sjúkleika sem hrjáir hægri menn á Íslandi og þeirra Baugs áráttu. Það er væntanlega ekki hægt að fá meðferð við þessum sjúkleika.

Þarna er reyndar líka verið að saka Evrópusinna um að geta ekki unnið saman í einu félagi. Sem er óttaleg vitleysa, þar sem Evrópusinnar starfa í dag í einu félagi sem kallast Sterkara Ísland. Önnur félög Evrópusinna vinnan síðan með Sterka Ísland eftir þörfum.

Andstæðingar ESB á Íslandi virðast aðeins vinna undir einum manni, og sá maður heitir Davíð Oddsson.