Uppspuni andstæðinga ESB á Íslandi

Það er eitt sem andstæðingar ESB aðildar Íslands stunda ofar öllu öðru, en það er að spinna allskonar vitleysu um stuðningsmenn ESB aðildar Íslands og síðan um Evrópusambandið sjálft. Þessi spuni er í raun ekkert annað en jafngildi áróðursherferðir gegn Evrópusambandinu á Íslandi.

Það sem markar hinsvegar málflutning andstæðinga ESB aðildar Íslands er sú staðreynd að þetta eru allt saman lygar sem þeir fara með. Enda eru staðreyndirnar mjög augljósar um hvað Evrópusambandið stendur fyrir og hvað það hefur alltaf staðið fyrir.

Það er ennfremur ljóst að andstæðingar ESB aðildar Íslands hafa engar lausnir, enga stefnu. Enda er það langtíma verkefni og stefna að vera aðildarþjóð að Evrópusambandinu.

Það sem einnig markar andstæðinga ESB aðildar Íslands er sú staðreynd að þetta fólk vill viðhalda einangrun Íslands og efnahagsóstöðugleika. Samanber skort þeirra stjórnmálaflokka á lausnum á efnahagsvandamálum íslensku þjóðarinnar. Þetta er augljóst, það talar hinsvegar enginn um þessa staðreynd vegna þess að þessari staðreynd er ekki mikið haldið á lofti í umræðunni.

Verðtryggð króna er það sem andstæðingar ESB aðildar standa fyrir á Íslandi.