Dansað við fasismann á Íslandi

Það vantar ekki að þingmenn sjálfstæðisflokksins skuli dansa við fasismann og öfgafólkið. Enda virðist sjálfstæðisflokkurinn ekki vera orðin neitt annað sjálfur. Þetta sést best á því að þingmaður sjálfstæðisflokksins tekur viðtal við hægri öfgamannin Daniel Hannan sem er Evrópuþingmaður Breska Íhaldsflokksins. Þessi maður er öfgamaður með meiru, og í raun alveg stjórnlaus með slíku. Rugludallurinn og öfgamaðurinn Glen Beck er aðdáandi því sem Daniel Hannan er að segja.

Það þarf ekki að segja mikið meira um hvaða línu af fólki sjálfstæðisflokkurinn er að blanda geði við þessa dagana. Ég vona að almenningur láti það vera að kjósa þessa öfgamenn til valda á Íslandi.