Tækifæri til að hætta við meiðyrðalögsókn Gunnlaugur Sigmundsson á hendur Teiti Atlasyni

Ég, Jón Frímann Jónsson gef þér Gunnlaugur Sigmundsson hér með tíma til þess að hætta við lögsókn á hendur Teiti Atlasyni fyrir árslok 2011. Ástæðan er mjög einföld. Lögsókn þín er ekkert nema tilraun til þess að ritskoða og þagga niður í bloggurum á Íslandi, og ég mun ekki líða slíkt. Ég tek það fram að ég óttast þig alls ekki, enda er ég ekki einu sinni hræddur við harð-kjarnann í sjálfstæðisflokknum, sem reyndi að valta yfir mig árið 2009 en mistókst.

Lögsókn þín á hendi Teits er einnig byggð á vafasömum forsendum, og þú ert í raun ekki að gera neitt annað en að stunda það sem er kallað „Libel tourism“ upp á enskuna. Ég veit ekki hvort að Svíþjóð hafi lög gegn svona, þar sem Teitur er með lögheimili. Þó er alveg ljóst að dómur á Íslandi er ekki hægt að framfylgja í Svíþjóð. Þar sem löggjöfin í Svíþjóð heimilar Teiti að fjalla um það sem honum sýnist og vel það. Jafnvel þó svo að það sé ekki staðan á Íslandi um þessar mundir.

Af þeim sökum þá yrði dómsniðurstaða á Íslandi marklaus í Svíþjóð, þar sem Teitur er búsettur.

Af þessum staðreyndum sögðum. Þá gef ég þér tíma fram að áramótum að hætta við lögsókn á hendur Teiti Atlasyni, sem fjallaði eingöngu um gamalt mál sem var í fjölmiðlum fyrir meira en 16 árum síðan, og byggði umfjöllun sína á gögnum sem eru öllum aðgengileg og sýnileg.

Það er ennfremur ljóst að þú [Gunnlaugur Sigmundsson] hefur verið duglegur við að grafa sjálfur undan málinu með þinni eigin hegðun. Hótanir eins og þú hefur líklega haft frammi í þessum SMS skilaboðum eru hinsvegar vel kæranlegar í Svíþjóð, og mundi þá dómsmálið ná á Íslandi þar sem um væri að ræða opinbert mál á hendur þér. Um svona mál gilda samningar á milli Svíþjóðar og Íslands, þó svo að þeir nái ekki til meiðyrðamála eins og áður segir.

Hvað gerist ef þú [Gunnlaugur Sigmundsson] hættir ekki við dómsmálið á hendur Teiti Atlasyni. Ég mun grafa upp allan þann skít, og alla þá spillingu sem þú hefur stundað. Ég mun ekki bara stoppa þar. Ég mun koma upp um alla þá sem hafa unnið með þér í spillingunni, alveg óháð því sem þeir gera í dag, og breytir þá einu hvort að þeir eru lífs eða liðnir. Ég mun koma upp um alla spillinguna og gera hana opinbera. Það má vel vera að þetta taki mig áratug. Ég hef alveg tíma í svoleiðis verkefni, þó svo að hægt mundi ganga.

Þetta mundi hinsvegar allt koma fram á þessu bloggi, og væntanlega í kjölfarið á fjölmiðlum á Íslandi í kjölfarið. Þú hefur fram að áramótum Gunnlaugur Sigmundsson. Mundu það þegar þú ert búinn að lesa þessa bloggfærslu.

One Reply to “Tækifæri til að hætta við meiðyrðalögsókn Gunnlaugur Sigmundsson á hendur Teiti Atlasyni”

  1. Hvað er þessi arfaspillti framsóknarmaður, sem á líklega íslandsmet í innherjaviðsiptum, eiginlega að hugsa. Er hann virkilega enn með þessa hálfvita kæru á hendur Teiti í gangi? Þeir feðgarnir Sigmundur Davíð og Gunnlaugur eiga digra sjóði, fengna með braski og vilja nota þá til að þagga niður í bloggurum. Þettu eru nú meiru drullusokkarnir. Hugsar pabbi ekkert út í það, að þetta geti haft afar neikvæðar afleiðingar fyrir stjórnmálaframa Sigmundar?

Lokað er fyrir athugasemdir.