Ögmundur Jónasson er hættulegur frelsi almennings á Íslandi

Það er orðið alveg ljóst eftir síðustu bloggfærslu Ögmundar Jónassonar að hann er hættulegur frelsi almennings á Íslandi. Enda lætur þessi núverandi ráðherra dómsmála á Íslandi vafasamar fullyrðingar konu frá Bandaríkjunum fjarlægja alla rökhugsun og skynsemi hjá Ögmundi. Eins og ég hef bent á í fyrri bloggfærslum mínum um umrædda konu. Þá er ekkert til í þessum fullyrðingum hennar. Hvorki að hluta eða heild.

Klámefni er löglegt í Danmörku og hefur verið það síðan árið 1967. Án nokkura sýnilegra slæmra áhrifa á almenning síðan klám var gert löglegt í Danmörku. Þetta eru 45 ár af löglegu klámi, án nokkura af þeim áhrifum sem Ögmundur fullyrðir núna í nýjasta bloggfærslu sinni um áhrif kláms á almenning. Það er ekki klám sem er ógn við almannaheill. Það er fólk eins og Ögmundur og Gail Dines sem er ógn við almannaheill. Í sumum löndum heims er svona fólk kallað talíbanar.

Klám í Danmörku

Pornography in Denmark (Wiki)

Bloggfærsla Ögmundar Jónassonar

KLÁMIÐNAÐURINN: ÓGN VIÐ ALMANNAHEILL (ogmundur.is, og Ögmundur skrifar í caps lock titlana á bloggfærslunum sínum.)