Heimssýn bryður samsæriskenningapillur um stjórnmálaflokkinn Viðreisn

Það er alveg ljóst á síðustu færslu Heimssýnar að fólkið þar gengur ekki heilt til skógar og er á kafi í heimasmíðum samsæriskenningum um hina og þessa. Allt saman sem er auðvitað tómt bull og stenst ekki neina skoðun eða staðreyndir.

Það er hinsvegar ekki ljóst hvort að Heimssýn brjóti lög með því að taka stöðugt undir áróður Rússlands um Evrópusambandið enda er leyndarhyggjan slík í Heimssýn að ekkert skín þar í gegn og enginn veit nema útvaldir hverjir eru að borga fyrir þessa áróðursstarfsemi á Íslandi gegn Evrópusambandinu. Það er hinsvegar alveg ljóst að Heimssýn mun hverfa á endanum enda er meðalaldurinn í þessum einangrunarklúbbi slíkur að næsti aðalfundur verður haldinn á einhverju elliheimilinu í Reykjavík (eða úti á landi).

Þegar Bashar al-Assad skipaði hernum gegn almenningi í Sýrlandi

Þegar Arabíska vorið gekk yfir miðaustur lönd þá risu upp mótmæli í Sýrlandi. Þetta voru lítil mótmæli vegna nokkura handtekinna unglingsdrengja. Þessi mótmæli í Sýrlandi snérust fljótlega upp í mótmæli gegn Bashar al-Assad og stjórn hans en þessi fjölskylda hefur verið einráð í Sýrlandi undanfarna áratugi og stjórnað með harðri hendi. Þegar mótmæli gegn Bashar al-Assad fóru af stað þá skipaði Bashar al-Assad hernum einfaldlega að taka þetta fólki af lífi án dóms og laga. Auk þess sem skipun var gefin um að bæla niður mótmælin með harðri hendi eins fljótt og hægt væri. Það mistókst hjá Bashar al-Assad og ríkisstjórn hans og borgarastríð braust út í kjölfarið.

Síðan hafa ýmsir hópar uppreisnarmanna (sem berjast stundum innbyrðis um landsvæði) verið í þessum átökum. Ásamt hryllingnum sem isis (hryðjuverkasamtök) komu fram með á því landsvæði sem þau stjórnuðu til lengri tíma. Ég ætla ekki að skrifa sérstaklega um þátt Kúrda, þar sem það er bara einn hópurinn af mörgum sem tekur þátt í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi. Innrás Tyrklands inn í Sýrland og Írak á landsvæði Kúrda er ólögleg samkvæmt alþjóðlegum lögum, þar sem þar er brotið gegn fullveldi Sýrland og Íraks á grófan hátt.

Á síðustu árum hafa Rússar blandað sér í átökin af fullum krafti og núna er hafin áróðursherferð sem málar grimmdarverk og stríðsglæpi ríkisstjórnar Bashar al-Assad í jákvæðu ljósi. Það er að sjá á skýrslum og fréttum að allir uppreisnarhópar í Sýrlandi (með undantekningu fyrir Kúrdum eins og stendur) hafi framið grimmdarverk og stríðsglæpi gegn almennum borgurum í þessari borgarastyrjöld. Það mun taka marga áratugi að komast að því hverjir frömdu hvaða glæpi þegar þessu loksins líkur ef það verðu einhverntímann hægt, sem er langt frá því að það sé hægt.

Rússland hefur tekið þá afstöðu að styðja af fullum krafti ríkisstjórn Bashar al-Assad og það þýðir að dreifa áróðri um hans ríkisstjórn og stöðu hans í þessu borgarastríði. Bandaríkin hafa lítið skipt sér af þessu eftir slæma reynslu í Afganistan. Ríkisstjórn Obama ákvað að eingöngu skyldi þjálfa Kúrda til þess að berjast á móti isis, her Sýrlands og uppreisnarhópum sem voru að reyna koma á sínu eigin einveldi. Það var ekki fyrr en Bashar al-Assad fór að nota efnavopn gegn almennum borgurum og uppreisnarmönnum að Bandaríkin gerðu loftárásir á valin skotmörk hjá Sýrlenska hernum. Hvað ríkisstjórn Donald Trump gerir er ekki ljóst en það sem hefur gerst er að Bandaríkin hafa dregið svo til allan stuðning frá Kúrdum opinberlega að skipun Donald Trump.

Upphaf borgarastríðsins í Sýrlandi

Syria: Defectors Describe Orders to Shoot Unarmed Protesters (2011, hrw)
Syria: The story of the conflict (2016, BBC News)
When did protest against the Assad government turn to war in Syria? (The Independent, 2017)

Bændasamtök Íslands eru gjörspillt og handónýt samtök

Það er að sjá á lestri nýjasta Bændablaðsins að Bændasamtök Íslands ætla sér að fara í áróðursherferð gegn innflutningi á kjöti, mjólk og eggjum til Íslands. Þar sem Bændasamtök Íslands eru eingöngu borguð með skattpenginum íslenskra skattgreiðanda þá er ljóst að íslenskir skattgreiðendur munu borga fyrir þennan lyga-áróður sem Bændasamtök Íslands ætla sér að fara að dreifa til íslendinga.

Bændasamtök Íslands eru gjörspillt samtök sem þjóna ekki hagsmunum íslenskra bænda að neinu leiti. Þetta er klúbbur örfárra ríkra einstaklinga sem hafa náð þar völdum og fara með alla bændur eins og leiguliða á 19 öldinni.

Það á að leggja niður alla tolla á innflutning á matvöru. Enda kosta íslenskir matvælatollar íslenskan almenning milljarða króna árlega og þessi verndarstefna kostar íslenska bændur ennþá hærri upphæðir. Ólíkt því sem lygin segir frá Bændasamtökum Íslands þá er matvælaframleiðsla á Íslandi sáralítil og mun aldrei framleiða nóg ofan í alla þá ferðmenn sem munu koma til Íslands árið 2018 en sú talað er áætluð 2,8 milljónir manna. Íslenskir bændur rétt svo framleiða ofan í 348.000 manns eins og staðan er í dag og í sumri framleiðslu er ekki framleitt nóg. Helst er skortur í svínakjöti, kjúklingi og nautakjöti. Það er alveg ljóst að lambakjöt verður seint flutt til Íslands enda er lítið framleitt af lambakjöti í ríkjum á meginlandi Evrópu.

Bændasamtök Íslands í núverandi mynd á að leggja niður. Íslenska ríkið á að taka þennan málaflokk af þessum sérhagsmunastamtökum enda er núverandi fyrirkomulag þannig að það getur eingöngu boðið upp á spillingu og sóun almannafjár. Skýrsla Ríkisendurskoðunar frá árinu 2011 um þetta mál er að finna hérna. Það á einnig að afnema lög 130/1994 um Bændasamtök Íslands. Þetta geta verið frjáls félagsamtök og það krefst ekki sérstakrar lagasetningar af hálfu Alþingis.

Þess má einnig geta (víst að þessi auglýsing er í Bændablaðinu). Þá er ekki gott að gefa kanínum gulrætur þar sem slíkt veldur þeim tannskemmdum og er vont fæði fyrir þær. Fái kanínur að velja þá borða þær græna sem er á gulrótum fyrst og hafi þær ekkert annað þá borða þær sjálfa gulrótina. Best er að gefa kanínum grænfóður (gras, kál og annað slíkt) og sleppa gulrótum algerlega.

Heimssýn gengur fram í heimsku og einangrunarstefnu

Samtök einangrunarsinna, þjóðernissinna og annara vitleysingja sem kalla sig Heimssýn (sem er rangnefni, vegna þess að þetta eru þjóðernissinnuð samtök sem eru rekin af öfgafólki) hélt aðalfund sinn, þar var drukkið mikið kaffi, nýr formaður kosinn og samþykktar samþykktir um það hvernig skuli gera líf hins almenna Íslendings eins ömurlegt og leiðinlegt og hægt er.

Þar á meðal vilja Heimssýn segja upp EES samningum [sjá hérna] og þar með öllum þeim viðskipta tækifærum sem þar er að finna. Auk frjálsri för fólk. Ég sé ekki að hinn almenni Íslendingur geti ekki lengur keypt húsnæði á Spáni sem er eingöngu heimilt vegna EES samningins. Ég veit ekki hversu margir í Heimsýn eiga húsnæði á Spáni í krafti EES samningins en miðað við í Heimssýn er mikið af fólki sem er komið á elliheimili þá er alveg ljóst að fjöldi þeirra sem eru í Heimssýn og hata Evrópusambandið eiga húsnæði á Spáni sem er aðildarríki að Evrópusambandinu og notar evruna sem gjaldmiðil.

Síðan bullar Heimssýn eitthvað um orkumál og Ísland. Þar sem Ísland er ekki hluti af sameiginlegu orkuneti Evrópusambandsins þá skiptir aðild Íslands að orkustjórnun á hinum Evrópska raforkumarkaði engu máli. Síðan er alveg ljóst á því sem Heimssýn ályktar að þeir skilja hvorki upp eða niður í tilgangi Agency for the Cooperation of Energy Regulators (ACER) [heimasíðan þeirra er hérna]. Þegar Heimssýn fjallar um eitthvað sem þeir skilja ekki þá er notað það bragð að fullyrða án nokkura sannana að Evrópusambandið ætli sér að stjórna hinu og þessu á Íslandi. Það sama gildir um rugludallana og öfgafólkið frá Noregi í Nej til EU. Það fólk er alveg jafn heimskt og takmarkað og fólkið sem er í Heimssýn.

Á meðan Ísland er ekki aðili að Evrópusambandinu er EES samningurinn það skásta sem íslendingar hafa ásamt hinni takmörkuðu EFTA aðild. Íslendingar eiga hinsvegar að ganga í Evrópusambandið til þess að hafa áhrif á lagasetningar og koma sínum sjónarmiðum á framfæri innan Evrópu. Án slíkra áhrifa skiptir íslenska þjóðin engu innan Evrópu þar sem sjónarmið íslendinga verða útundan (eins og sjónarmið Noregs og Bretlands þegar þeir yfirgefa Evrópusambandið árið 2019).